Hvernig hljómar „2021 Besta árið hingað til“?
Tökum okkur í gegn eftir covid árið 2020 og keyrum þetta í gang.
Þann 4. janúar hefst það „Hugrekkið & hvatningin inn í nýja árið“!
Hvatningin fer fram í lokuðum hópi á facebook, þar sem við munum finna bestu útgáfuna af sjálfum okkur.
Hvernig verður þú besta útgáfan af þér?
Ég ætla að aðstoða þig við það! Ég mun fara í gegnum það hvernig við stundum sjálfsrækt og sjálfsumhyggju og hvernig við byggjum upp sjálfsmyndina okkar. Hvernig við setjum okkur markmið og fylgjum þeim eftir, svo eitthvað sé nefnt.
Ég mun á hverjum degi í 2 vikur, koma inn á hópinn með fróðleik og góð verfæri til þess að þú náir sem bestum árangri. Ég verð til staðar fyrir hvert og eitt ykkar allan þann tíma og svara öllum spurningum og vangaveltum um það sem liggur ykkur á hjarta. Ég mun hvetja þig áfram og fylgja þér eftir, ef þú vilt það.
Þetta er algjörlega einstaklingsmiðað og þú færð tækifæri til þess að fara yfir þessi atriði með faglærðum markþjálfa með mikla reynslu á þessu sviði bæði úr lífi og starfi.
Ég á að baki rétt tæpar 200 klst af samtölum og hef náð PCC hæfniviðmiðum ICF (International coaching federation).
Þetta er tilvalið tækifæri fyrir þig, þú getur unnið þetta á þínum hraða, heima eða hvar og hvenær sem þú vilt.
Verðið fyrir þessar 2 vikur er 5900kr. - ef þú skráir þíg fyrir 24. des, þá greiðir þú einungis 4900kr.
Hvað er í þessu fyrir þig?
- Þú eflist í aga
- Þú lærir að stjórna huganum
- Þú færð betri yfirsýn á líf þitt
- Þú finnur út hvað er mikilvægast fyrir þig
- Þú lærir að setja þér markmið
- Þú lærir leiðina að fara á eftir markmiðum þínum
- Þú færð enn betri sjálfsmynd og sjálfstraust
- Þú lærir að eiga í heilbrigðum og góðum samskiptum við sjálfa/n þig
Mig langar að bjóða þér að fara með mér í þetta ferðalag.
Sendu mér línu og ég bæti þér í hópinn.
Ég mun birta hópinn fyrir ykkur á milli jóla og nýárs, þar sem við getum spjallað saman og þið leyfið mér að heyra hvað þið viljið helst fá út úr þessum 2 vikum.
Mikið hlakka ég til að byrja þetta með þér!