Ég hef sagt ykkur frá því áður og oft,
að ég sé að byggja upp verkefni, fyrirtæki, námskeið og allskonar. En aldrei hef ég lagt það fram fyrir neinum eins og það átti líta út.
Einn daginn er ég sjúklega peppuð, annan daginn er ég fæ ég kvíðahnút í magann og veit ekki alveg hvernig ég á að framkvæma það, efinn um mig sem rekstraraðila og manneskju hefur kraumað innra með mér, þó ég viti það innst inni algjöran óþarfa.... Spurningar á við:
Er þetta það sem ég á að vera að gera?
Hvar á ég að byrja?
Hvað á ég svo að gera?
Hvernig verður þetta og hvernig verður hitt..?
Liðnir eru nú margir mánuðir sem ég hef velt þessu fyrir mér og hef alltaf verið að bíða eftir „rétta“ tækifærinu til að byrja að framkvæma.
Ég er reyndar komin vel á veg með hugmyndina mína, en það eru alltaf að bætast við nýjar og nýjar hugmyndir í kollinum á mér um leið og ég sæki mér meiri þekkingu. Nú þegar er ég búin að gera verkefnaáætlun frá a-ö, ég er byrjuð að skrifa viðskiptaáætlun og tölvan mín er að fyllast af allskonar vinnuskjölum og hugmyndum, sem ég þarf að fara að nota í einhverju samhengi.
Ég legg nefnilega ekki í neitt einasta ferðalag nema vera með allt á hreinu, vinna allt rétt og skipulega. Því „á sandi byggði heimskur maður hús“ muniði? Ef grunnurinn er í lagi, þá er mun líklegara að annað verði í lagi.
Ég hef svo ótrúlega margt fram að færa, sem ég ætla að nota í það að skapa og þróa minn eigin draum og láta hann verða að veruleika!
Ég hef mikla og viðtæka menntun og reynslu sem ég ætla líka að nýta og deila áfram. Ég er handviss um það að það eru enn margir „þarna úti“ sem geta bæði lært af mér og kennt mér meira.
En ég hef hugsað það svo mikið, fram og tilbaka, hvernig einyrki eins og ég, heima í eldhúsi eða inná skrifstofu geti í raun hrint svona spennandi tækifærum í loftið!
Ég hef spurt mig (og geri oft enn): „Af hverju ætti fólk eða fyrirtæki að sækja í mína þjónustu og vörur?“ „Hvað hef ég sem aðrir hafa ekki?“, „Af hverju er mitt betra en hitt?“, „Hvað er unique við mig og mitt?“.
Um daginn skráði ég mig í stuðningsnet frumkvöðla. Þar hef ég fengið mikið af upplýsingum og lært helling. En í dag byrjaði ég daginn minn á því að sitja námskeið á vegum þeirra. Það gaf mér enn meiri innspýtingu og ég tók ákvörðun um að byrja allt upp á nýtt. Auðvitað mun ég styðjast við það sem ég er þegar búin að gera hingað til, enda mjög flott og vel unnið - þó ég segi sjálf frá.
Það sem mig vantar, á þessum tímapunkti, er að komast að því hvernig best er að koma þessu út í kósmósið! (Markaðsfræði er eina fagið sem ég á eftir að læra).
Ég ákvað þess vegna, í ljósi þessara ákvarðana að setjast niður og taka fram Hamingjubókina mína sem ég keypti sl. vetur. (Hef reyndar keypt 3, því ég kláraði 2 í uppbyggingunni á sjáfri mér). Þessa bók ætla ég að nota í vinnuna að stofnun fyrirtækisins míns, sem mig hefur lengi dreymt um að stofna.
JÁ! Þið heyrðuð það fyrst hér!
Ég ætla að stofna fyrirtæki með frábærum tilgangi, markmiðum og afurðin verður GEGGJUÐ!
...ekki bara geggjuð heldur mjög nytsamleg fyrir einstaklinga, fyrirtæki, íþróttafélög, samtök, Bæjarfélög, stofnanir – og allt hitt sem þér dettur í hug.
...Fylgstu með mér áfram!