Innsæið - Breytingar - Hugrekki - Sigur
Hlustar þú á innsæið þitt?
Hvað er innsæið að segja þér?
Langar þig að breyta til?
Hvað kemur í veg fyrir að þú gerir það?
Þegar maður hlustar á innsæið og leyfir því að koma, geta gerst magnaðir hlutir.
Ég trúi því að öllum er ætlað eitthvað hlutverk í lífinu. Margir hafa ekki hugmynd um hvert þeirra hlutverk er í raun og veru. Margir sitja fastir í sama farinu, í sama stólnum og eru ekki endilega ánægðir með þann stað - „Hamstrahjólið“ er svo algengur staður að festa sig á, sama rútína, sama sagan alla daga.
Þegar maður er staðsettur í slíkum aðstæðum og langar að breyta til, er gott að hlusta á innsæið sitt og heyra hvað það segir. Langar þig að breyta til? Hvað ætlar þú að gera í því?
Að breyta til getur verið mjög stór áskorun í lífi margra og erfitt að framkvæma.
Hvað þarftu til þess að geta breytt núverandi ástandi til hins betra?
Spurðu þig að því hvað verður betra þegar þú hefur náð markmiðinu? Hvaða hindranir þarft þú að yfirstíga á leiðinni? Hvaða þróunarsviðum þarft þú að vinna í til að auka líkurnar á því að ná árangri? Hverjir eru styrkleikar þínir?
Fyrst og fremst þarftu Hugrekki til að taka ákvörðun um að breyta til og hugrekki til að standast þær áskoranir sem á vegi þínum verða á leiðinni. Þú þarft að vita hvert þú vilt stefna og setja þér markmið í þá átt.
Markmiðin þurfa að vera skýr, ákveðin og ekki síst raunhæf.
Hver er framtíðarsýn þín?
Settu þér markmið í þá átt, á þinn áfangastað og Sigraðu sjálfa/n þig.
Þegar búið er að ákveða hvert skal haldið, er best er að brjóta markmiðið niður í lítil skref í rétta átt, eitt í einu svo áskorunin sýnist ekki of þung. Þú veist hvert þú vilt stefna og er þá mikilvægt að skilgreina ferðalagið vel, skrá niður þau atriði sem þú þarft að gera meira af eða minna af, það sem þú þarft að byrja að gera eða hætta að gera, til að ná því. Nýttu styrkleika þína í að koma þér áfram í áttina.
Breytingar geta verið erfiðar áskoranir og til þess að standast þær þarftu að minnsta kosti; Hugrekki, Þrautseigju, Vilja, Ákveðni, Löngun og Kraft. Þú þarft að þekkja inná sjálfa/n þig, hver eru Gildi þín og Styrkleikar.
Stundum þarf líka utanaðkomandi stuðning, einhvern óháðan aðila sem getur hvatt þig áfram í rétta átt. Þá komum við að markþjálfun og þeirri aðferðafræði sem við styðjumst við. Þessi aðferð er afar áhrifarík og hjálpar fólki að virkilega sigra sjálfa/n sig.
Markþjálfar vinna mikið með þeim sem vilja breyta til. Verkefni okkar sem markþjálfar er að aðstoða fólk við að setja raunhæf markmið og hvetja það áfram til að ná þeim.
Markþjálfi leggur fyrir þig krefjandi og áskorandi spurningar þar sem þú lærir betur inná sjálfa/n þig og færð alla þá hvatningu sem þú þarft til að halda áfram og sigra.
Markþjálfi aðstoðar þig við að skilgreina Gildi þín í lífinu og hjálpa þér að finna út hvort þú lifir eftir þeim. Í sameiningu finnum við út styrkleika þína og nýtum þá í markmiðavinnunni.
Hver ertu? Hvað viltu? Hvert ertu að stefna?
Svörin liggja öll hjá þér!
Að þessu sögðu.
Ef þú eða einhver sem þú þekkir vill prófa markþjálfun, þá býð ég upp á fyrsta tíma frítt.
Það er alltaf miðað við að markþegi komi að minnsta kosti í 3-5 tíma til að tryggja sem bestan árangur.
Endilega hafðu samband við mig og við finnum tíma til að hefja ÞITT ferðalag.
.....þar til næst