Þegar öllu er á botninn hvolft, hvað er það sem í raun og veru skiptir mestu máli í lífi okkar?
Þegar maður hugsar útí það, hver er þá útkoman?
- Eru það peningar?
- Er það skólinn eða vinnan?
- Eða gæti það kannksi þú sjálf/ur?
Rannsóknir víða hafa sýnt að ef þér líður vel andlega og líkamlega, þá mun lífið ganga betur.
Skólinn verður auðveldari viðureignar og vinnan verður miklu skemmtilegri.
Svarið við spurningunni um það hvað í raun og veru skiptir máli, er að mínu mati, gott sjálfsálit og sterkt sjálfstraust. Sem sagt sterk sjálfsmynd!
Hvernig öðlumst við sterkari sjálfsmynd?
Hvað getur þú gert til að auka sjálfstraustið og sjálfsálitið þitt og þar af leiðandi styrkt sjálfsmyndina þína?
...hugsaðu það aðeins!
Ef þú ert ekki viss um hvað þú getur gert, þá skal ég benda þér á nokkur atriði sem gætu reynst þér vel.
Hver eru gildin þín?
Fyrst og fremst er mikilvægt að vita hver gildi manns eru og hvort maður sé að lifa eftir þeim. Getur þú skrifað niður gildin þín?
Hér eru nokkur dæmi um gildi með stuttri útskýringu, alls ekki tæmandi listi:
Gætir þú fundið, út frá þessum dæmum sem ég set upp, hver þín gildi eru?
- Sveigjanleiki
o Að aðlagast auðveldlega nýjum aðstæðum
- Stöðugleiki
o Að lifa stöðugu lífi
- Skemmtun
o Að njóta líðandi stundar og hafa gaman af því að vera til
- Heiðarleiki
o Að vera heiðarleg/ur og sannorð/ur
- Réttlæti
o Að efla sanngjarna og réttláta meðferð gagnvart öllum
- Heilbrigði
o Að vera hraust/ur og heilbrigður á sál og líkama
- Áskorun
o Að taka að sér krefjandi og erfið verkefni og leysa þau
- Þekking
o Að tileinka sér og miðla verðmætri þekkingu
- Tilgangur
o Að hafa stefnu, markmið til að ná og framtíðarsýn í lífinu
- Innsæi
o Að heyra og sjá meira en það sem sést og er sagt
- Árangur
o Að ná góðum árangri í því sem þú tekur þér fyrir hendur
- Sjálsagi
o Að gera það sem gera þarf burtséð frá því hvernig líðanin er
- Dyggð
o Að lifa framúrskarandi og siðferilega hreinu lífi
- Sjálfsvirðing
o Að horfast í augu við afleiðingar gjörða sinna gagnvart sjálfum sér og öðrum
- Raunsæi
o Að sjá hlutina og bregðast við þeim af raunsæi og hagkvæmni
- Innri friður
o Að upplifa og viðhalda innri frið
- Metnaður
o Allt sem þú vilt gera, er þess virði að gera það vel
- Hugrekki
o Að standa í fæturna þrátt fyrir ótta, sársauka, áhættu og óvissu
- Sjálfsþekking
o Að hafa djúpan og heiðarlegan skilning á sjálfum sér
- Ábyrgð
o Að taka ábyrgar ákvarðanir og framkvæma þær, sýna ábyrgð í lífinu
Finndu útúr því hverju þú ert góð/ur í og hverju þú vilt verða betri í?
Munum að allir eru góðir í einhverju en enginn er góður í öllu.
Stundaðu það sem þú ert góð/ur í, finndu tíma í það, þrátt fyrir að þú haldir mögulega að þú hafir ekki tíma – þá er alltaf hægt að finna tíma fyrir það að gera það sem maður er góður í og það sem manni þykir skemmtilegt að gera. Í hverju ert þú góð/ur?
Eru það, sem dæmi:
- Hugsa um fjölskylduna?
- Verða betri í samskiptum við aðra?
- Íþróttir?
- Listir?
Íhugaðu það, skráðu það hjá þér, settu það á markmiðalistann að ætla að búa til tíma til að stunda það sem þérn þykir skemmtilegt að gera.
Stundaðu þakklæti
- Fyrir hvað ert þú þakklát/ur?
o Kaffibollinn á morgnana
o Veðrið á Íslandi
o Vinnan þín
o Fjölskyldan þín
Það þarf alls ekki að vera eitthvað stórt og mikið, bara það að þú sért þakklát/ur fyrir eitthvað, hugsir um það og takir það til þín. Til að ná sem bestum árangri, þá er best að skrifa þakklæti daglega niður í bók – þína dagbók.
Jákvæðni
Það er gríðarlega mikilvægt í allri sjálfsvinnu að vera jákvæð/ur. Stundum er maður bara alls ekki í neinu skapi til að vera jákvæð/ur, en það borgar sig að reyna. Það er alltaf hægt að finna eitthvað jákvætt við allar aðstæður. Jákvæðni borgar sig tilbaka. Að eiga í samskiptum við neikvæðan einstakling getur dregið úr manni sjálfum, en ef maður bregst við með jákvæðum svörum þá eru meiri líkur á því að sá neikvæðni verði ósjálfrátt jákvæðari.
Standa með sjálfum sér
Það getur verið mjög flókið oft á tíðum, sérstaklega í samskiptum við aðila sem hafa áhrif á mann. T.d. Eldri fjölskyldimeðlim, yfirmann, samstarfsmann.
Það hafa allir rétt á því að hafa skoðanir. Meira að segja skoðanir á þér og því sem þú tekur þér fyrir hendur. Gagnrýni er algeng og það getur verið erfitt að taka henni.
En ef þú stendur með sjálfum þér og þeim ákvörðunum sem ÞÚ hefur ákveðið að taka eða framkvæma, þá á þér eftir að líða svo vel – bara það styrkir sjálfsmyndina verulega!
Fylgdu innsæinu
Hvað finnst þér? Hver er þín skoðun? Hvað segir hjartað þér að gera?
Gerðu ávalt það sem þú heldur að sé rétt fyrir þig og þína. Fylgdu hjartanu, fylgdu innsæinu og þá veist þú að þú gerðir rétt. Það eykur mikið sjálfstraustið – að þú vitir að þú getir fylgt þínu hjarta og innsæinu.
Ef þú vinnur markvisst að því að styrkja sjálfsmyndina þína, þá mun þér líða betur og þá áttu mun auðveldara með að ná markmiðum þínum. Það er staðreynd.
Ég get aðstoðað þig!
Vantar þig hvatningu, pepp, hjálp, skipulag eða hvað sem er sem hjálpar þér að styrkja sjálfsmyndina þína þá ekki hika við að hafa samband við mig.
Allar upplýsingar eru hér á síðunni.
....þar til næst
Ást og friður