Sjálfstraust - Sjálfsálit - Sjálfsmynd
Undirstaða allrar sjálfsvinnu er sjálfstraust og sjálfsálit – sjálfsmyndin þín.
Hvernig talar þú til þín? Hvernig hugsar þú um þig? Hvaða álit hefur þú á þér?
Ef ég spyr þig: „Hver ert þú?“ Hvert er þá svarið?
Ef þú hefur tekið ákvörðun um það að styrkja þig, ná markmiðum, verða betri; manneskja, mamma, pabbi, starfsmaður – hvað sem er, þá er nauðsynlegt að vita hver ÞÚ ert.
Sjálfsmynd er, í stuttu máli, sú heildarhugmynd sem einstaklingur hefur um sjálfan sig. T.d persónuleiki, áhugamál, kyn, aldur ofrv. Sjálfsmyndin er byggð á mörgum atriðum sem viðkomandi telur eiga við sig.
- Ég er kona/maður
- Ég er kokkur/bifvélavirki
- Ég er móðir/faðir
- Ég er dökkhærð/ur
Hver ert þú?
Sjálfsálit er viðhorfið sem þú hefur til sjálfs þíns og virði þíns sem manneskju.
Hvernig viðhorf hefur þú til þín? Hvernig metur þú þig sem manneskju?
Ertu með sterka, veika eða brotna sjálfsmynd?
- Ég er mikils virði
- Ég get allt sem ég ætla mér
- Ég er góður kokkur
- Mér mistekst alltaf
- Þetta er alltof flókið
- Hvernig á ég eiginlega að gera þetta..?
Hvar stendur þú miðað við þessi dæmi?
Sjálfstraust er trúin sem þú hefur á sjálfum/ri þér og getunni sem þú býrð yfir til að ná markmiðum þínum og takast á við daglegt líf.
Hversu örugg/ur ert þú í samskiptum við aðra? Hvernig líður þér í óvæntum aðstæðum? Hversu mikla trú hefur þú á sjálfri/sjálfum þér?
Sjálfstraust + sjálfsálit = sjálfsmynd
Ef þú ert í raun að hugsa, „hver er ég?“ þá ert þú að hugsa um sjálfsmyndina þína.
Þetta er hellingur af spurningum sem kannski erfitt er að svara strax en þetta eru allt spurningar sem þú verður að svara, fyrir þig.
Ég legg mikið uppúr því sem markþjálfi að hjálpa fólki að svara þessum spurningum. Þetta er djúp sjálfsvinna að finna svörin, en þessi vinna er mjög mikilvæg ef þú ætlar að komast á þinn allra besta stað í lífi og starfi.
Í markþjálfasamtali förum við saman yfir þau atriði sem hægt er að bæta til þess að styrkja sjálfsmyndina, sjálfstraustið- og álitið. Stundum er það alls ekki mikil vinna heldur bara vitundarvakningin sem á sér stað í samtalinu sem hjálpar fólki að finna þessi mikilvægu svör.
Það er mjög árangursríkt að fara til markþjálfa. Markmið markþjálfans er að aðstoða þig við að ná þínummarkmiðum. Markþjálfi segir þér ekki hvað þú átt að gera, heldur á sér stað samtal þar sem markþegi getur uppgötvað sjálfa/n sig á ný.
Með því að svara djúpum, sterkum og áhrifaríkum spurningum um sjálfa/n þig getur átt sér stað mögnuð vitundarvakning sem er eins og „spark í rassinn“ til að ná settum markmiðum.
Ég tala mikið um markmið. Mér sem markþjálfa þykir áhrifaríkasta aðferðin að fólk setji sér markmið. Þau þurfa ekki að vera stór og mikil, en þau eru áskorun á þig að halda áfram þó á móti blási.
Undirstaða þess að ætla að líða vel, ganga vel og ná markmiðum er að hafa sterka sjálfsmynd, gott sjálfstraust og hugsa vel um sjálfa/n sig.
Hvað gerir þú til að styrkja þitt sjálfstraust?