Hvers vegna ættir þú að leita til markþjálfa?
- Það er ekki samræmi á milli lífsins sem þú þráir og þess sem þú lifir.
- Það sem þú ert að gera leiðir þig ekki að þeirri útkomu sem þú vilt fá.
- Þér finnst þú geta gert betur og eiga betra skilið
- Þig vantar drifkraft og finnur ekki tilganginn.
- Þú setur orkuna í að hugsa um það sem þú vilt ekki frekar en að beina athyglinni að því sem þú vilt gera
- Þú veist ekki hverjir styrkleikar þínir og gildi þín eru
- Þú hugsar um það sem öðrum finnst frekar en að hugsa um hvað þú vilt
- Þú hefur ekki stjórn á aðstæðum og finnur ekki þína leið
- Þú býrð ekki yfir nægilegum kjarki til að gera það sem þú vilt og standa á þínu
- Þig vantar hvatningu og aðhald í lífinu
- Þú sérð ekki drauminn þinn fyrir allskyns hindrunum