Hvers vegna að óttast?
Það er mjög algengt að fólk lifi lífi sínu í „óttavíddinni“.
Óttavíddin er staðurinn sem sem ekkert gerist á. Þú hræðist að taka skrefið áfram og leyfir þér að dvelja í þægindarammanum. Þú situr fastur í þægindunum, af því það þekkir þú vel, af því þar veistu hvað er og hvernig hlutirnir eru. En það gerist ekkert nýtt. Það breytist ekkert. Allt er eins alltaf og þú heldur áfram að óttast hvað gerist ef þú tekur skref út fyrir rammann.
Þeir sem þekkja neikvæð og hamlandi áhrif óttans á líf sitt, vilja læra að velja hugrekkið í staðinn, taka skrefið og stíga inn í óttann og um leið finna frelsið sem því fylgir. Við höfum öll val þegar kemur að þessu. Ætla ég að velja óttann eða hugrekkið? Það er virkilega góð tilfinning að finna frelsið sem kemur í kjölfar hugrekkis.
Hinn frægi Winston Churchill sagði eitt sinn: „...Aðalatriðið er ekki að vinna eða tapa, heldur hvort maður hafi hugrekki til að gefast aldrei upp.“
Að stíga inn í óttann sinn er að sýna hugrekki. Hugrekki felst í því að takast á við þann ótta sem þú hræðist. Hugrekki er skilgreint sem gæði hugsunar sem gerir það að verkum að einstaklingur nær að takast á við erfiðleika án þess að hræðast.
Þannig má segja að hugrekki sé sambland af trú á eigin færni og kunnáttu og sýnir um leið viljastyrkinn sem hann býr yfir.
Trú á eigin færni og kunnáttu kemur oft sem afleiðing af því að ganga vel. Það að sigrast á þeim áskorunum sem maður hefur tekist á hendur, veldur því að við erum tilbúin að mæta nýjum áskorunum, aftur og aftur.
Viljastyrkur er nátengdur þrautseigju, sem snýst um að vinna markvisst að vissum málefnum eða markmiðum. Mikilvægt í þessu samhengi er að vera ekki hræddur við að gera mistök. Allir þeir sem hafa náð góðum árangri hafa gert fjölda mistaka á leiðinni. Það að taka áskorun sem getur haft mikil áhrif á þitt líf krefst hugrekkis.
Rannsóknir á afreksíþróttamönnum útí um allan heim, hafa sýnt það að þeir hugsa ekki um að gera mistök heldur einbeita þeir sér að því sem þarf að gera og hvernig á að framkvæma. Sjálfstraust er að sjálfsögðu mjög mikilvægt í þessu samhengi.
Að vera meðvitaður um að velja hugrekki í stað þess að leyfa óttanum að stjórna ferðinni, gerir okkur kleift að útrýma neikvæðum áhrifum óttans. Það hjálpar okkur við að þora að vera við sjálf og láta drauma okkar rætast. Draumarnir rætast nefnilega ekki í óttavíddinni, þeir rætast um leið og þú ákveður að fara á eftir þeim.
......þar til næst <3